milano.bloggar.is
MyndirMílanó
Vá hvað þetta eru bestu myndir í heimi, og þær verða betri, fylgisti með
HeimtMílanó
Strákar ég heimta blogg um roadtrip'ið okkar! Ég nenni ekki að blogga alltaf! Haa!Annars var bara snilld í Reykjavík og á Írskum dögum! Aðeins of mörgum peningum eytt kannski!
Fullt af myndum koma inn bráðum (allavega ekki mynd af birki, eða jú bíddu) þegar Kristó nennir að redda því! ;Þ
Þar fyrir utan var ömrulegt að koma heim, nú er ég bara hérna e-ð veikur og með tognað mjóbak eða e-ð álíka og hef ekki neitt að gera! Frábært!
En ég elska ykkur, bless!;**
Arnar Guðni Kárason
RoadtripMílanó
Já er það ekki bara þannig að allavega Mílanó menn ætla að keyra til rvk næsta þriðjudagskvöld eftir vinnu, og eyða mörgum peningum þar! Svo er planið að fara á Akranes á föstudeginum og tjalda þar yfir helgina þar sem Írskir dagar verða í gangi, ekki nema Todmobil, Papar og Bubbi að halda uppi góðu gamni!Þá er það spurning, eru ekki fleiri heitir fyrir Akranesi þessa helgi? Er ekki málið að fjölmenna austfriðingum þangað? ;)
P.s. Ég frétti það nú í morgun ég er bara e-ð að fara til Kanarí um jólin næstu! Í staðinn fyrir að borða machintos og laufabrauð ætla ég bara að drekka bjór og hafa það betra en gott með góðu fólki!
P.p.s ME vs. MK næsta vetur? Vantar ekki einhverjum meðleigjanda? Plís? Ekki?
P.p.p.s Allir að setja link á okkur? Ekki?
Hugs&Kisses;***
Arnar Guðni Kárason
BúlgaríaMílanó
Ég er farinn til búlgaríu, versla föt og njóta lífsinns.Lengi lifi Mílanó
Sjáumst brúnir í Reykjavík og á Akranesi strákar
Kveðja
Kristófer Nökkvi Sigurðsson
BardagiMílanó
Ég lnti í bardaga áðan! Þvílíkum bardaga, en ég er nú samt stráheill á húfi! Þakkið guði fyrir það!Þannig var það nú að ég átti leið upp stigann í húsinu mínu þegar ég sá lítið svart áttfætt kvikindi rölta um í sínum heimi! Mér stóð nú aldeilis ekki á sama um það, svo ég henti frá mér því sem var í haldi og spretti upp stigann í sókn að salernispappír! Ég tók vænan búnka af pappír og stökk mér sunds niður en viti menn, þegar niður var komið sá ég ei dýrið sá arna.. ég stóð og leitaði í án ýkja um 5 mínútur án nokkurra funda, mín síðasta tilraun var að beygja mig niður til að vera á sama hæðarplani og hún, maður á víst alltaf að setja sig í spor brotamannsinns til að finna hann! Og jújú var hún ekki í felum undir kantinum á einni tröppunni! Svo lúmkst, en það er bara ekki nóg til að sigra mikið! Hún gat jú falið sig, en ekki hlaupið í burtu! Þó að málstækið hafi nú hljóðað akkúrat öfugt!
Jæja þá var bráðin fundin, ég ætlaði að stinga mér í þetta og snúa hana niður, stúta henni og grafa! En þá tók hún á rás og hlaupa í burtu! Það var engu nær, eða reyndar.. þá hljóp hún á vegg.. og þessi dýr eru meiraðsegja með augu allan hringinn! 360 gráða sjónarhorn, ekki amalegt! En ég reið á vaðið og hjóóóóólaði í dýrið! Með klósettpappírinn í annari og hugrekkina í hinni, stakk mér til sunds og stúúútaði dýrinu! Hljóp með það upp, skellti því í klósettið og sturtaði því niður!
Já ég er að heyra að það sé bara einhversstaðar í Eyvindaránni núna, haaaa! En ég skalf lengi eftir þetta!
Já þetta var frásögn af bardaga mínum við dýrið, vantaði þó Fríðu (hahahaha).. En ég ætla að grilla svín og sveppi og borða það. Takk.
Arnar Guðni Kárason
Er partý í mínum húsum?Mílanó
Hér er frétt! Ég fékk skilaboð í svona bréfi áðan og er ég búinn að fá inngöngu í MK. Þannig að nú er það spurningin hvort maður ætti að skella sér í borgina og prófa nýtt líf í smástund. Það er nú alltaf gaman af tilraunum!Hér er saga! Síðasta föstudag klukkan svona 3 um nótt var ég, Birkir og Kristó á rúntinum og ég keyrði svona upp að fjarðarheiði hjá hitamælisskiltinu og stoppaði bílinn og labbaði út, og bángsinn fór líka út! Kristófer auðvitað læsti bílnum og klifraði frammí og keyrði í burtu, og ég og Birkir stóðum þarna bara útá vegi eins og hálfvitar sem vissu ekki neitt! Síðan kom bíll niður heiðina og var það enginn annar en löggubílinn, sem stoppaði ti lað gá hvort e-ð væri að. "Jááá hann bara skildi okkur eftir, þetta reddast alveg." og Kristleifur horfði náttúrulega á okkur eins og við værum fífl! Þá fattaði ég auðvitað að Kristófer var ekkert með bílpróf! Og Kristleifur myndi alveg þekkja hann ef hann myndi sjá hann haha! En kallinn var sniðugur og keyrði bara í einhvern hring, djöfull hefði verið fyndið hefði hann bara snúið við og mætt löggunni þarna! Haha!
Hér er hugmynd! Að fara til Reykjavíkur í roadtrip um svona 5. Júlí og verlsa og hafa gaman, og fara svo um helgina þar eftir á Akranes og tjalda og e-ð, þar sem engir aðrir en Papar og Todmobil og fleiri verða að spila! Hvernig hljómar þetta strákar?
Hér er auglýsing! Mér finnst alveg vanta gælunöfn, eins og Birkir Bángsi og þar fram eftir götum! Allar hugmyndir eru vel þegnar í comment!
Hér er kveðja! Gangiði bara hægt um gleðinnar dyr! En ekki of hægt samt!
Og eitt enn, er e-ð merkilegt að gerast um helgina, er það þess virði að vera í fríi eða á maður bara að vera að vinna?
Arnar Guðni Kárason
Þetta var hugmyndMílanó
Þá er komið að því, við strákarnir höfum fengið okkur blog-síðu, sumir að sjálfsögðu að stíga sín fyrstu skref en aðrir ekki, það er klárt mál. Sumir vita það líka örugglega en aðrir ekki, að við erum bara 4 ungir menn, saman í hljómsveit og góðir vinir, og ætlum bara að deila með ykkur netverjum öllu rugli sem okkur dettur í hug og þar fram eftir götum! Já við heitum Arnar, Birkir, Kristófer og Theódór!Þá er það bara gott mál!